Lánasjóður sveitarfélaga - Undirritun aðalmiðlarasamninga
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. hefur gengið frá samningum við aðalmiðlara í tengslum við útgáfu skuldabréfa Lánasjóðsins og viðskiptavakt á skuldabréfaflokkunum LSS150434, LSS151155 og LSS 39 0303. Markmiðið með samningunum er að styrkja aðgang Lánasjóðsins að lánsfé og efla verðmyndun á eftirmarkaði.
Frá 1. apríl 2025 hafa fimm fjármálastofnanir heimild til að kalla sig: "Aðalmiðlara með skuldabréf Lánasjóðsins ". Þær eru: Arion banki hf, Íslandsbanki hf., Landsbankinn hf., Kvika banki hf. og Fossar Fjárfestingarbanki hf.
Helstu atriði samningsins eru:
- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að útboðum Lánasjóðs sveitarfélaga ohf.
- Aðalmiðlari skuldbindur sig til að setja fram markaðsmyndandi tilboð í útboðum skuldabréfa lánasjóðsins að lágmarki 100 m.kr. að nafnverði samanlagt í þá flokka sem í boði eru í hverju útboði, að hámarki þó einu sinni í hverjum mánuði.
- Aðalmiðlarar hafa einir aðgang að sérstökum verðbréfalánum sem Lánasjóðurinn veitir.
- Aðalmiðlari er viðskiptavaki á eftirmarkaði fyrir þrjá skuldabréfaflokka Lánasjóðsins og setur fram kaup- og sölutilboð að lágmarki (nafnv.) sem hér segir:
- LSS150434: 40 m.kr.
- LSS151155: 20 m.kr.
- LSS 39 0303: 40 m.kr.
- Aðalmiðlari skuldbindur sig til þess að verðmunur kaup- og sölutilboða hans fari ekki yfir 1% fyrir LSS150434 og LSS 39 0303 en 1,25% fyrir LSS151155.
- Aðalmiðlara er skylt að endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að þeim hefur verið tekið. Ef aðalmiðlari á viðskipti á einum viðskiptadegi fyrir samtals 200 m.kr. að nafnvirði með þá flokka lánasjóðsins sem viðskiptavakt er með er honum heimilt að víkja út frá hámarksmun kaup- og sölutilboða.
- Samningarnir gilda frá 1. apríl 2025 til 31. mars 2026.
Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, ottar@lanasjodur.is / s. 515 4949
Attachments
- 2025-03-24 Aðalmiðlarasamningur LSS 2025 - Sýnishorn
- 2025-03-24 Aðalmiðlarasamningur LSS viðauki 2025 - Sýnishorn

© 2025 GlobeNewswire, Inc. All Rights Reserved.