Síminn hf. - Uppgjör 1. ársfjórðungs 2025 verður birt eftir lokun markaðar 29. apríl
Síminn hf. mun birta uppgjör sitt fyrir fyrsta ársfjórðung 2025 þann 29. apríl næstkomandi.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl í húsnæði félagsins, Ármúla 25, Reykjavík. Fundurinn hefst klukkan 8:30 og eru fjárfestar og markaðsaðilar sérstaklega boðnir velkomnir.
Á fundinum munu María Björk Einarsdóttir forstjóri og Óskar Hauksson fjármálastjóri kynna uppgjör félagsins og svara fyrirspurnum. Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt á fjárfestavef Símans og í fréttakerfi Nasdaq Iceland.
Jafnframt verður hægt að fylgjast með fundinum í netstreymi á vef Símans. Þeir sem vilja bera upp spurningar meðan á streymi stendur geta sent þær á fjarfestatengsl@siminn.is og verður þeim svarað í lok fundar.
Nánari upplýsingar veitir Hersir Aron Ólafsson á netfanginu fjarfestatengsl@siminn.is.

© 2025 GlobeNewswire, Inc. All Rights Reserved.