Hagar hf.: Útboð á víxlum 20. maí 2025
Hagar hf. efna til útboðs á víxlum þriðjudaginn 20. maí 2025. Boðnir verða til sölu víxlar í nýjum 6 mánaða flokki HAGA251126.
Fossar fjárfestingarbanki hf. hefur umsjón með útboðinu og kynningu þess fyrir hugsanlegum fjárfestum. Útboðið verður með hollenskri aðferð, þ.e. öll samþykkt tilboð bjóðast fjárfestum á hæstu flötu vöxtum sem tekið er. Víxlarnir eru gefnir út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og sótt verður um skráningu þeirra í Kauphöll. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er eða hafna þeim öllum. Niðurstöður útboðsins verða birtar opinberlega eigi síðar en næsta virka dag eftir útboð.
Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d-liðar, 4. mgr. 1. gr. reglugerðar Evrópusambandsins og ráðsins (ESB) nr. 2017/1129 um lýsingu sem birta skal þegar verðbréf eru boðin í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu víxlaflokksins og töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll verða birt á vefsíðu félagsins: https://www.hagar.is/fjarfestar/skuldabrefautgafa/
Skila skal inn tilboðum á netfangiðutbod@fossar.is fyrir klukkan 17:00 þriðjudaginn 20. maí 2025. Uppgjör viðskipta fer fram þriðjudaginn 27. maí 2025.
Nánari upplýsingar veita:
Ásgrímur Gunnarsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., sími: 522-4000, asgrimur.gunnarsson@fossar.is
Arnar Geir Sæmundsson, Fossar fjárfestingarbanki hf., arnar.saemundsson@fossar.is
Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., geg@hagar.is

© 2025 GlobeNewswire, Inc. All Rights Reserved.