Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2027 og þriggja ára áætlun 2028–2030 lögð fram til fyrri umræðu
Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun fyrir tímabilið 2028 – 2030 var lögð fram í bæjarstjórn Árborgar til fyrri umræðu í dag miðvikudaginn 18. nóvember 2026. Gert er ráð fyrir að seinni umræða og afgreiðsla fjárhagsáætlunar í bæjarstjórn verði miðvikudaginn 2. desember 2026.
Áætluð rekstrarniðurstaða samstæðunnar, að meðtöldum samstarfsverkefnum, er jákvæð um 85,8 m.kr. árið 2027 samkvæmt fjárhagsáætluninni sem lögð er fram til fyrri umræðu. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði er áætluð jákvæð um 2.895 m.kr. Afskriftir eru áætlaðar 1.190 m.kr. og fjármagnskostnaður 1.618 m.kr.
Áætlunin gerir ráð fyrir að samanlagðar tekjur A og B hluta verði 23.637 m.kr. á árinu 2027. Heildarlaunakostnaður er áætlaður 13.475 m.kr. sem er 57% af heildartekjum og 73,1% af skatttekjum. Annar rekstrarkostnaður er áætlaður um 6.845 m.kr.
Skuldaviðmið samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga nr. 502/2012 er áætlað 118,5% árið 2027 og er gert ráð fyrir að það lækki í 109,8% árið 2030. Skuldahlutfall er áætlað 140,3% árið 2027.
Veltufé frá rekstri er áætlað 2,47 ma.kr árið 2027, 2,77 ma.kr. árið 2028, 2,98 ma.kr. árið 2029 og 3,2 ma.kr. árið 2030.
Framlegðarhlutfall er áætlað 12,2% fyrir árið 2027 og hækkar í 14,2% fyrir árið 2030.
Fjárfestingar eru áætlaðar 3,56 ma.kr. árið 2027, 3,51 ma.kr árið 2028 og 3,49 ma.kr árið 2029 og 3,44 ma.kr árið 2030.
Hjálagt er að finna frumvarp að fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar 2027 til 2030.
Nánari upplýsingar veita Bragi Bjarnason, bæjarstjóri, netfang: bragi@arborg.is; og Unnur Edda Jónsdóttir, fjármálastjóri,netfang:unnurej@arborg.is.
Attachment

© 2026 GlobeNewswire, Inc. All Rights Reserved.











